Einhverntíman var ég að ráfa um vefinn og kynna mér sögu BMW þegar ég rakst á 507 bílinn. Mjög laglegur bíll sem BMW framleiddi á sjötta áratugnum. Þá var BMW að reyna að koma sér aftur í gang eftir stríðið og koma sér aftur á blað meðal bestu bílaframleiðenda heims.
BMW 507 kom fyrst fram á sjónarsviðið á bílasýningunni í Frankfurt árið
1955. Í bílnum var 3.2 lítra 150 hestafla V8 vél. Bílarnir voru mjög
dýrir og aðeins 252 bílar voru framleiddir
(Elvis átti m.a. einn!). Sagt er
að BMW hafi tapað slatta á hverjum bíl sem þeir seldu. Bíllinn var
hannaður af Albrecht Goertz með aðstoð frá Max Hoffmann. Goertz hannaði
eða kom nálægt hönnuninni á allnokkrum frægum bílum, m.a. BMW 503,
Toyota 2000GT coupe, Datsun 240Z og eitthvað átti hann þátt í hönnuninni á
Porsche 911 og hannaði einnig fyrir Studebaker. Í dag er 507 bíllin mjög
eftirsóttur safngripur.
BMW Z8 bíllinn kom fyrst fram í James Bond kvikmyndinni The World Is Not
Enough árið 1999. Í bílnum er 5.0 lítra 400 hestafla V8 vél. Hinn umdeildi
Chris Bangle, fyrsti bandaríski yfirhönnuður BMW, var yfirhönnuður bílsins
og það sem hönnunardeildin gerði var að ímynda sér hvernig 507 bíllinn liti
út ef aldrei hefði verið hætt að framleiða hann heldur hefði hann þróast til
dagsins í dag. Bíllinn er enn í framleiðslu og um mitt ár 2002 (frá árinu
2000 þegar bíllinn fór í sölu) höfðu rúmlega 4200 Z8 bílar verið seldir.
Það er skemmtilegt að sjá hversu vel BMW hefur tekst til að skjóta 507 bílnum ca 45 ár fram í tímann! :-)